Fótasæla - Djúptengsla meðferð
Eins og nafnið gefur til kynna er fótanuddið himnesk upplifun! Meðferðin byrjar á fótabaði með jurtum og olíum en síðan eru iljar og kálfar nuddaðir með ákveðnum hreyfingum og þrýstingi til að ná til ósjálfráða taugakerfisins. Meðferðin veitir djúpa slökun, líkamlega og andlega, dregur úr sársauka bætir starfsemi tauga og blóðrásar og getur flýtt fyrir bata eftir veikindi. Bætir meltingarkerfið og starfsemi innkirtla og er gott á meðgöngu .
Djúptenglsanudd er gömul kínversk meðferð, sem er farin að njóta mikilla vinsælda í náttúrulegum meðferðum til að vinna á sársauka og stressi.
Það er unnið með þá kenningu að ákveðin svæði á fótum og höndum tengist öðrum líkamspörtum og líffærum, og að nudda þessi svæði, örvi taugakerfið til að lækna sig sjálft.
Kínverjarnir trúðu því að djúptengslnuddið örvaði líkamann til að lækna sig sjálfan með því að bæta hringrásarkerfið, draga úr stressi, draga úr verkjum og stuðla að náttúrulegu jafnvægi í líkamanum.
Hvað getur djúptengslanudd gert fyrir þig???
Ef þú ert að jafna þig eftir slys, eða veikindi, eða ert orkulaus, þá getur djúptengslanuddið flýtt fyrir að líkaminn nái jafnvægi og lækni sig sjálfur. Nuddið getur örvað blóðrásina, dregið úr spennu og kvíða, losað um mígreni, bætt lélega meltingu, örvað sogæðakerfið, dregið úr einkennum á tíðarhvörfum og tíðarverkjum. Ófrískar konur hafa nefnt að djúptengslanuddið létti á þrýstingi og verkjum niður í fætur.