Nú er komið að því að halda næsta súkkulaðinámskeið, jólin framundan og hvað er betra en að geta borðað súperhollt jólanammi yfir jolin. Þetta er sýnikennsla þar sem ég sýni ykkur hversu ótrúlega einfalt og fljótlegt það er að búa til nammi, sem er stútfullt af góðri næringu. allir fara með konfekt og kökur með sér heim, en einnig munum við setjast niður eftir námskeiðið og njóta þess að bragða á afurðinni. ég læt fylgja hér með eina einfalda og góða uppskrift af uppáhalds hrákökunni minni. Hrá MokkakakaBotninn:
1 bolli rúsínur 2 bollar kókosmjöl 1/2 bolli lífræn kókosolía 3/4 bollar kakó dökkt agave sýróp ca 4-5 msk allt sett í blandara og síðan þrýst í botn á smelluformi (geyma í frysti meðan fyllingin er gerð) Krem: 2 bollar kasjúhnetur (í bleyti í 2 tíma) 1/2 bolli kókosolía 1/2 bolli agave sýróp dökkt 5-8 dropar kaffi (frá Medicine Flower) (einnig hægt að nota instant kaffi bleytt upp í smá heitu vatni) 1 avókadó sett í blandara og blandað þar til silkimjúkt. Ef blandan er of þykk er hægt að þynna hana með kókosolíu eða smá vatni. Þessu er svo smurt yfir botninn og stungið aftur inn í frystinn. Súkkulaði: 1/2 bolli kákósmjör 1/2 bolli kókosolía 1 bolli hrákakó smá sýróp ca 1 til 2 msk Efitirfarandi er val 2 msk lucuma 1 msk macca duft 1 msk möluð goji ber hampfræ chillie duft Súkkulaðið er brætt yfir vatnsbaði og hellt yfir kökuna. Hægt er að skreyta hana með goji berjum og kakónibbum. Geymið í frysti. Njótið vel. Ég óska öllum vinum og viðskiptamönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þakka fyrir liðið ár.
Er með gjafakort í allar meðferðir á 15% afslætti fram að jólum. Góð gjöf fyrir alla Hægt að panta á netinu og fá gjafakortið sent. Er með aðsetur í Olíulindinni, Vegmúla 2 í Reykjavík og Valsheiði 15, Hveragerði. [email protected] S: 865 8431 milli 9:00 og 17:00 virka daga 50 ástæður til að drekka Hveitigras daglega Fyrir sum okkar eru 50 ástæður það sem þarf..... Ég rakst á þessa frábæru grein á netinu um daginn og það rifjaði upp fyrir mér hversu dásamlega vel mér leið þegar ég drakk hveitigras daglega í 3 mánuði. Ég var full af orku allan daginn, daglegu verkin kláruðust á undraverðan hátt án nokkurs fyrirhafnar og samt var nóg eftir af bæði orku og deginum. Svo nú er ég búin að setja hveitifræin í bleyti, og búin að ná mér í mold og nú skal drukkið hveitigras daglega að minnsta kosti fram að áramótum. Hverjum veitir ekki af auka orku nú þegar jólastússið fer að byrja. Svo ég ákvað að þýða þessar 50 ástæður og athugið hvort það er ekki eitthvað þar sem höfðar til ykkar. 1. Hveitigras er besta uppspretta af lifandi blaðgrænu sem hægt er að fá í dag. En til að fá sem bestu áhrif þarf að drekka það nýpressað. 2. Hveitigras inniheldur allt að 70% chlorophyll, sem er mjög gott fyrir blóðið. Samsetningin á blaðgrænu líkist mjög samsetningu á blóði aðal munurinn liggur í því að blaðgrænan er með magnesium sem mið atom, en blóðið er með járn. Það er nánast eins að öðru leiti. 3. Blaðgræna er það efnasamband sem drekkur í sig sólarljósið og notar orkuna frá því til að mynda kolvetni frá CO2 og vatni(ljóstillífun) sem er grunnurinn til að viðhalda lífi hjá öllum plöntum. Þar sem dýr og flest mannfólk, fær stóran hluta fæðunnar úr plöntulífinu er hægt að segja að (ljóstillífun) sé einnig stór partur af okkar tilveru. 4. Blaðgræna inniheldur fullt af ensímum sem hægja á öldrun. 5. Blaðgræna er fyrsta efnið sem ljósið myndar og inniheldur þar af leiðandi meiri ljósorku en nokkuð annað efni í fæðunni. 6. Hveitigras inniheldur óunna blaðgrænu og það er hægt að drekka það og einnig hægt að nota það í ristilskol, án aukaverkana. Vísindamenn hafa aldrei fundið eitrunaráhrif í hvaða skammti sem er bæði til dýra og manna. 7. Vísindamenn hafa sýnt fram á að blaðgræna stöðvar vöxt og framleiðslu á óvinveittum bakterium. 8. Blaðgræna er bakteríudrepandi og það er hægt að nota það bæði innvortis og útvortis til lækninga. 9. Það er hægt að fá blaðgrænu úr mörgum plöntum, en hveitigras er besta uppsprettan, þar sem það inniheldur yfir 100 efni sem við þörfnumst. Ef það er ræktað í lífrænni mold, tekur það upp 92 af 115 þekktum steinefnum í jarðveginum. 10. Fljótandi blaðgræna hefur hæfileikann til að fara inn í vefi, þar sem það getur hreinlega lagað og endurnýjað þá. 11. Hveitgras blaðgrænan er mjög græðandi og róandi fyrir húðvandamál, t.d. exem, bruni eftir brenninetlu, eða sár eftir skordýrabit svo eitthvað sé nefnt. 12. Doctor R. Redpath og J.C. Davis fundu út að setja blaðgrænu tappa í nefið, hreinsuðu upp stíflur í kinn og nefholum og losaði um á 24 tímum. 13. Fljótandi blaðgræna hreinsar lyfjarestar úr líkamanum. 14. Blaðgræna dregur úr áhrifum eiturefna í líkamanum 15. Blaðgræna hjálpar til við að hreinsa lifrina. 16. Blaðgræna hjálpar til við að vinna á blóðsykurs vandamálum. 17. Í “the Americn Journal of Surgery(1940)” Benjamin Gruskin, M.D. mælir með Blaðgrænu fyrir það hversu sótthreinsandi hún sé og telur upp ýmis vandamál sem blaðgrænan gæti unnið á ,t.d. græða sár, vinnur á sýkingum margs konar og m.fl. 18. Dr. Birscher vísindamaður, kallaði blaðgrænu “samsafnaða sólarorku” Hann sagði “blaðgræna eykur virkni hjartans, bætir æðakerfið, smáþarmana, legið og lungun.” 19. Hveitigras getur lagað ör sem myndast í lungum við að anda að sér eiturgufum. 20. Hveitigras hefur hátt hlutfall af súrefni eins og allar grænar plöntur sem innihalda blaðgrænu. Þetta er gott fyrir heilann og alla vefi líkamans, þar sem hann vinnur best þegar það er mikið súrefni í líkamanum. 21. Hveitigras er næringarlega séð fullkomin fæða sem getur viðhaldið vexti og þroska dýra og manna. 22. Hveitigras er meira hreinsandi heldur en gulrótarsafi eða annar grænmetis eða ávaxtasafar. 23. Það er mikil orka í hveitifræunum og að drekka hveitigras hentar sérstaklega vel fyrir íþróttamenn, þar sem það nýtist innan 20 mínútna og tekur litla orku frá líkamanum að nýta sér næringuna þar sem hún er í fljótandi formi. 24. Eitt skot af hveitigrasi slekkur á löngun í sætindi eða annan mat, þar sem það inniheldur svo mikla næringu. 25. Hveitigras inniheldur öll þau vitamin og steinefni, þar á meðal þau 13 mikilvægustu, ásamt fullt af öðrum efnum og ensímum sem við þurfum. 26. Hveitigras er áhrifamikið til betri heilsu, þar sem það inniheldur öll steinefni sem þekkt eru og vitamin A, B-complex, C,E,L og K. Það inniheldur einnig mikið protein og 17 aminosýrur. 27. Bændur hafa notað hveitgras til að auka frjósemi í kúnum sínum. (Hátt hlutfall af magnesium, eykur kynhormónin) 28. Hveitigras læknar bólur og jafnvel hjálpar til við að losna við ör. Það þarf að sjálfsögðu að laga mataræðið líka samfara því að nota hveitigrasið. 29. Hveitigras getur virkað eins og þvottaefni í líkamanum og eyðir vondri líkamslykt. 30. Að bæta hveitigrasi í fæðuna, hjálpar til við að koma í veg fyrir tannskemmdir. 31. Að velta hveitigrasi í munninum í 5 mínútur getur losað okkur við tannverk, það dregur sýkingu út úr gómnum. 32. Skolaðu hálsinn með hveitigrasi ef þú ert með sáran háls. 33. Drekktu hveitigras við húðvandamálum, eins og exemi og psoriasis. 34. Hveitgras dregur úr því að hárið gráni. 35. Tannrótarbólga í munni: leggðu svamp rennblautan í hveitigrasi á sýkta svæðið eða tyggðu hveitigras og skyrptu því svo út úr þér. 36. Hveitigras bætir meltinguna 37. Hveitigras er mjög góður húðhreinsir og hægt er að bera það á sig og húðin dregur í sig næringuna. Berðu á þig hveitigras fljótandi, og leggstu í heitt bað í 15 til 20 mínutur. Hreinsaðu þig með köldu vatni. 38. Hveitigras ristilskol, eru mjög góð til að heila og hreinsa ristilinn. Það hreinsar og heilar einnig innri líffæri. Eftir ristilskol, settu inn 4 únsur af hveitigrassafa. Haltu því inni í 20 mín. 39. Hveitigras getur dregið úr gigt. Leggðu bakstra af hveitigrasi á auma svæðið vefjið plasti yfir. 40. Búið til skol úr hveitigrasi fyrir minniháttar augnvandamál. 41. Nuddið hveitigras safa í höfuðleðriðr og hyljið í 15 mínutúr til að losna við flösu. 42. Hveitigras getur verið gott við margs konar kvenna vandamálum. 43. Hveitigras er gott við hægðartregðu það auðveldar ristlinum vinnuna þar sem það er svo hátt magnesíumhlutfall í því 44. Hveitigrassafi dregur úr háum blóðþrýstingi og eykur við háræðarnar. 45. Hveitigras getur hjálpa til við að losa okkur við þungmálma úr blóðinu. 46. Hveitigras bætir hvers konar blóðvandamál. 47. Annað gott við hveitigras er að þú getur ræktað það innan viku í eldhúsinu heima hjá þér. 48. Hveitigras er gluten-frítt, þar sem það er klippt áður en það myndar korn. 49. Dr. Earp Thomas fann ýmsa kosti við hveitigrasið, það er græðandi, stöðvar blæðingar, lagar kláða, og hjálpar til við að græða sár og bólur. Hann ráðlagði einnig að þvo ávexti og grænmeti upp úr hveitigras blönduðu vatni, það væri sótthreinsandi . 50. Að síðustu – með því að taka inn hveitigras, finnurðu aukinn styrk og þol, endurnýjaða heilsu likamalega og andlega, og almenna vellýðan. Ef þið viljið sjá þessa grein óstytta farið á http://thechalkboardmag.com/50-reasons-to-drink-wheatgrass-everyday Fótasæla - Djúptengsla meðferð Eins og nafnið gefur til kynna er fótanuddið himnesk upplifun! Meðferðin byrjar á fótabaði með jurtum og olíum en síðan eru iljar og kálfar nuddaðir með ákveðnum hreyfingum og þrýstingi til að ná til ósjálfráða taugakerfisins. Meðferðin veitir djúpa slökun, líkamlega og andlega, dregur úr sársauka bætir starfsemi tauga og blóðrásar og getur flýtt fyrir bata eftir veikindi. Bætir meltingarkerfið og starfsemi innkirtla og er gott á meðgöngu . Djúptenglsanudd er gömul kínversk meðferð, sem er farin að njóta mikilla vinsælda í náttúrulegum meðferðum til að vinna á sársauka og stressi. Það er unnið með þá kenningu að ákveðin svæði á fótum og höndum tengist öðrum líkamspörtum og líffærum, og að nudda þessi svæði, örvi taugakerfið til að lækna sig sjálft. Kínverjarnir trúðu því að djúptengslnuddið örvaði líkamann til að lækna sig sjálfan með því að bæta hringrásarkerfið, draga úr stressi, draga úr verkjum og stuðla að náttúrulegu jafnvægi í líkamanum. Hvað getur djúptengslanudd gert fyrir þig??? Ef þú ert að jafna þig eftir slys, eða veikindi, eða ert orkulaus, þá getur djúptengslanuddið flýtt fyrir að líkaminn nái jafnvægi og lækni sig sjálfur. Nuddið getur örvað blóðrásina, dregið úr spennu og kvíða, losað um mígreni, bætt lélega meltingu, örvað sogæðakerfið, dregið úr einkennum á tíðarhvörfum og tíðarverkjum. Ófrískar konur hafa nefnt að djúptengslanuddið létti á þrýstingi og verkjum niður í fætur. Regndropameðferð-Raindrop-Technique er öflugt meðferðarferli sem sameinar vísindi ilmolíufræða, nudd og orkujöfnun til að auka heilbrigði og lífskraft. Hún er sérstök olíusmurning á bak og fætur með hágæða , lífrænum kjarnolíum. Meðferðin var þróuð af Gary Young náttúrulækni í samræmi við gömul vísindi indjána um orkukerfi líkamans. Meðferðin dregur nafn sitt af því að 10 mismunandi ilmolíur eru látnar falla úr 15 cm hæð ofan á hrygginn, þannig að nuddþeginn upplifir það eins og að regndropar falli mjúklega ofan á bakið á honum. Olíurnar eru síðan nuddaðar á sérstakan hátt inní vefina til að rétta skekkjur og mýkja stífa og þreytta vöðva. Eftir að búið er að setja allar olíur á hrygginn og nudda þær inn og teygja á er heitur bakstur lagður á bakið. Þetta virkar róandi og eykur upptöku olianna og framkallar djúpa slökun, endurnýjar, hreinsar og jafnar orku allra líkamskerfanna. Regndropameðferð er meðferð til að örva taugaboð líkamans í þeim tilgangi að hreinsa og hlaða orkustöðvarnar. Hún styrkir og róar taugarnar, léttir á spennu í vöðvum, hreinsar blóðrásina og sogæðakerfið, styrkir ónæmiskerfið, vinnur á þreytu og orkuleysi eftir veikindi og vinnur á bólgum í vöðvum, liðamótum og beinabólgu. Tímapantanir í síma 865-8431 eða á [email protected] Er í Olíulindinni, Vegmúla 2 á þriðjudögum Hveragerði hina virku dagana. Er að byrja nýtt lífstílsnámskeið í samstarfi með Ásgerði Jónsdóttur, hjúkrunarfræðingi og heilsuráðgjafa. Við ætlum að hafa opinn kynningarfund á miðvikudaginn n.k. til að kynna um hvað þetta námskeið snýst. Við ákváðum að bjóða "bara í þetta eina sinn" upp á að það sé frítt fyrir maka eða barn. Endilega komið og kynnið ykkur um hvað þetta snýst.
|
AuthorWrite something about yourself. No need to be fancy, just an overview. Archives
November 2014
Categories |