Blomadropameðferð
Blómadropar innihalda íslenskt vatn og tíðni eða útgeislun plantnanna sem er áran þeirra, því sérhver planta hefur sína sérstöku tíðni og útgeislunarorku. það er þessi lífs- eða tíðniorka þeirra sem við sækjumst eftir, því að hún getur fært okkur orku, þegar við þurfum á henni að halda. Við notum útgeislun plöntunnar ekki efnislega hluta hennar, þess vegna geta allir notað blómadropa þótt þeir hafi ofnæmi fyrir einstaka jurtum og blómum, því ekkert efnislegt frá plöntunni er í dropunum. Blómadropar veita góða hjálp öllum þeim sem eru í einhverskonar meðferð, sama hvaða nafni hún nefnist. Þeir veita okkur orku og hugarjafnvægi, styrkja sjálfstraustið, geta bætt samskipti okkar við bæði okkar nánustu og ókunnuga, geta hjálpað okkur að losa um erfiðar tilfinningar og koma okkur í jafnvægi.