Lithimnulestur / Augngreining
Augngreining skiptist í Lithimnugreiningu, hvítugreiningu og
persónuleikagreiningu. Augngreining er gamall vísdómur og er meðal annars vitað
að Kínverjar hafa stundað hvítugreiningu í a.m.k. 1000 ár. Allir kannast við
orðatækið að augun sé spegill sálarinnar, en augun sýna einnig ástand sálar og
líkama, heilbrigði og sjúkdóma. Hvítugreining er nútímavísindi sem nota merki í
hvítu augans til að skoða heilsufar manneskju.
Lithimnugreining er eins og nafnið gefur til kynna greiningartæki en ekki
meðferð sem slík. Lithimnugreining getur sagt til um hvaða líffæri eða
líkamskerfi eru viðkvæmust fyrir álagi hjá viðkomandi einstaklingi. Meðal annars
má sjá ástand líffæra, uppsöfnun eiturefna, sýrustig líkamans og
bólgumyndanir.
Hvað sýnir hvíta augans?
Hvítugreiningu má nota til að upplýsa meðferðaraðilann um hvar þróun
veikleika á sér stað. Þannig er hægt að grípa inn í og snúa við þróuninni
jafnvel áður en sjúkdómar koma fram. Þeir fagmenn sem nota hvítugreiningu eru
flestir sammála um að hún sé meðal albestu og fjótlegustu greiningaraðferða sem
fyrirfinnast. Líkamlegt ástand birtist á einfaldan hátt. Hvítugreining sýnir
ástand líkamsvefja eins og það er, og það er borið saman við merki lithimnunnar
og einkenni sem líkaminn gefur til kynna til að fá góða mynd af heilsufarinu.
Greiningin er ekki óþægileg fyrir þolandann og krefst ekki sérstaks
tækjabúnaðar. Hvítugreining er auðveld og traustvekjandi.
Persónuleikagreining
Lithimnan getur líka upplýst okkur um persónuleika viðkomandi. Þar kemur
fram erfðafræðilegir eiginleikar, en einnig eftir því sem árin líða bætast við
merki í augun okkar eftir því hvernig persónuleikinn okkar þróast. þetta getur
verið mjög skemmtilegt tæki til að leika sér með, en getur einnig hjálpað fólki
til að skilja sjálft sig.