Nú er komið að því að halda næsta súkkulaðinámskeið, jólin framundan og hvað er betra en að geta borðað súperhollt jólanammi yfir jolin. Þetta er sýnikennsla þar sem ég sýni ykkur hversu ótrúlega einfalt og fljótlegt það er að búa til nammi, sem er stútfullt af góðri næringu. allir fara með konfekt og kökur með sér heim, en einnig munum við setjast niður eftir námskeiðið og njóta þess að bragða á afurðinni. ég læt fylgja hér með eina einfalda og góða uppskrift af uppáhalds hrákökunni minni. Hrá MokkakakaBotninn:
1 bolli rúsínur 2 bollar kókosmjöl 1/2 bolli lífræn kókosolía 3/4 bollar kakó dökkt agave sýróp ca 4-5 msk allt sett í blandara og síðan þrýst í botn á smelluformi (geyma í frysti meðan fyllingin er gerð) Krem: 2 bollar kasjúhnetur (í bleyti í 2 tíma) 1/2 bolli kókosolía 1/2 bolli agave sýróp dökkt 5-8 dropar kaffi (frá Medicine Flower) (einnig hægt að nota instant kaffi bleytt upp í smá heitu vatni) 1 avókadó sett í blandara og blandað þar til silkimjúkt. Ef blandan er of þykk er hægt að þynna hana með kókosolíu eða smá vatni. Þessu er svo smurt yfir botninn og stungið aftur inn í frystinn. Súkkulaði: 1/2 bolli kákósmjör 1/2 bolli kókosolía 1 bolli hrákakó smá sýróp ca 1 til 2 msk Efitirfarandi er val 2 msk lucuma 1 msk macca duft 1 msk möluð goji ber hampfræ chillie duft Súkkulaðið er brætt yfir vatnsbaði og hellt yfir kökuna. Hægt er að skreyta hana með goji berjum og kakónibbum. Geymið í frysti. Njótið vel. |
AuthorWrite something about yourself. No need to be fancy, just an overview. Archives
November 2014
Categories |