Nú er komið að því að halda næsta súkkulaðinámskeið, jólin framundan og hvað er betra en að geta borðað súperhollt jólanammi yfir jolin. Þetta er sýnikennsla þar sem ég sýni ykkur hversu ótrúlega einfalt og fljótlegt það er að búa til nammi, sem er stútfullt af góðri næringu. allir fara með konfekt og kökur með sér heim, en einnig munum við setjast niður eftir námskeiðið og njóta þess að bragða á afurðinni. ég læt fylgja hér með eina einfalda og góða uppskrift af uppáhalds hrákökunni minni.
Hrá Mokkakaka
Botninn:
1 bolli rúsínur
2 bollar kókosmjöl
1/2 bolli lífræn kókosolía
3/4 bollar kakó
dökkt agave sýróp ca 4-5 msk
allt sett í blandara og síðan þrýst í botn á smelluformi (geyma í frysti meðan fyllingin er gerð)
Krem:
2 bollar kasjúhnetur (í bleyti í 2 tíma)
1/2 bolli kókosolía
1/2 bolli agave sýróp dökkt
5-8 dropar kaffi (frá Medicine Flower) (einnig hægt að nota instant kaffi bleytt upp í smá heitu vatni)
1 avókadó
sett í blandara og blandað þar til silkimjúkt. Ef blandan er of þykk er hægt að þynna hana með kókosolíu eða smá vatni.
Þessu er svo smurt yfir botninn og stungið aftur inn í frystinn.
Súkkulaði:
1/2 bolli kákósmjör
1/2 bolli kókosolía
1 bolli hrákakó
smá sýróp ca 1 til 2 msk
Efitirfarandi er val
2 msk lucuma
1 msk macca duft
1 msk möluð goji ber
hampfræ
chillie duft
Súkkulaðið er brætt yfir vatnsbaði og hellt yfir kökuna. Hægt er að skreyta hana með goji berjum og kakónibbum.
Geymið í frysti.
Njótið vel.