50 ástæður til að drekka Hveitigras daglega
Fyrir sum okkar eru 50 ástæður það sem þarf.....
Ég rakst á þessa frábæru grein á netinu um daginn og það rifjaði upp fyrir mér hversu dásamlega vel mér leið þegar ég drakk hveitigras daglega í 3 mánuði. Ég var full af orku allan daginn, daglegu verkin kláruðust á undraverðan hátt án nokkurs fyrirhafnar og samt var nóg eftir af bæði orku og deginum. Svo nú er ég búin að setja hveitifræin í bleyti, og búin að ná mér í mold og nú skal drukkið hveitigras daglega að minnsta kosti fram að áramótum. Hverjum veitir ekki af auka orku nú þegar jólastússið fer að byrja. Svo ég ákvað að þýða þessar 50 ástæður og athugið hvort það er ekki eitthvað þar sem höfðar til ykkar.
1. Hveitigras er besta uppspretta af lifandi blaðgrænu sem hægt er að fá í dag. En til að fá sem bestu áhrif þarf að drekka það nýpressað.
2. Hveitigras inniheldur allt að 70% chlorophyll, sem er mjög gott fyrir blóðið. Samsetningin á blaðgrænu líkist mjög samsetningu á blóði aðal munurinn liggur í því að blaðgrænan er með magnesium sem mið atom, en blóðið er með járn. Það er nánast eins að öðru leiti.
3. Blaðgræna er það efnasamband sem drekkur í sig sólarljósið og notar orkuna frá því til að mynda kolvetni frá CO2 og vatni(ljóstillífun) sem er grunnurinn til að viðhalda lífi hjá öllum plöntum. Þar sem dýr og flest mannfólk, fær stóran hluta fæðunnar úr plöntulífinu er hægt að segja að (ljóstillífun) sé einnig stór partur af okkar tilveru.
4. Blaðgræna inniheldur fullt af ensímum sem hægja á öldrun.
5. Blaðgræna er fyrsta efnið sem ljósið myndar og inniheldur þar af leiðandi meiri ljósorku en nokkuð annað efni í fæðunni.
6. Hveitigras inniheldur óunna blaðgrænu og það er hægt að drekka það og einnig hægt að nota það í ristilskol, án aukaverkana. Vísindamenn hafa aldrei fundið eitrunaráhrif í hvaða skammti sem er bæði til dýra og manna.
7. Vísindamenn hafa sýnt fram á að blaðgræna stöðvar vöxt og framleiðslu á óvinveittum bakterium.
8. Blaðgræna er bakteríudrepandi og það er hægt að nota það bæði innvortis og útvortis til lækninga.
9. Það er hægt að fá blaðgrænu úr mörgum plöntum, en hveitigras er besta uppsprettan, þar sem það inniheldur yfir 100 efni sem við þörfnumst. Ef það er ræktað í lífrænni mold, tekur það upp 92 af 115 þekktum steinefnum í jarðveginum.
10. Fljótandi blaðgræna hefur hæfileikann til að fara inn í vefi, þar sem það getur hreinlega lagað og endurnýjað þá.
11. Hveitgras blaðgrænan er mjög græðandi og róandi fyrir húðvandamál, t.d. exem, bruni eftir brenninetlu, eða sár eftir skordýrabit svo eitthvað sé nefnt.
12. Doctor R. Redpath og J.C. Davis fundu út að setja blaðgrænu tappa í nefið, hreinsuðu upp stíflur í kinn og nefholum og losaði um á 24 tímum.
13. Fljótandi blaðgræna hreinsar lyfjarestar úr líkamanum.
14. Blaðgræna dregur úr áhrifum eiturefna í líkamanum
15. Blaðgræna hjálpar til við að hreinsa lifrina.
16. Blaðgræna hjálpar til við að vinna á blóðsykurs vandamálum.
17. Í “the Americn Journal of Surgery(1940)” Benjamin Gruskin, M.D. mælir með Blaðgrænu fyrir það hversu sótthreinsandi hún sé og telur upp ýmis vandamál sem blaðgrænan gæti unnið á ,t.d. græða sár, vinnur á sýkingum margs konar og m.fl.
18. Dr. Birscher vísindamaður, kallaði blaðgrænu “samsafnaða sólarorku” Hann sagði “blaðgræna eykur virkni hjartans, bætir æðakerfið, smáþarmana, legið og lungun.”
19. Hveitigras getur lagað ör sem myndast í lungum við að anda að sér eiturgufum.
20. Hveitigras hefur hátt hlutfall af súrefni eins og allar grænar plöntur sem innihalda blaðgrænu. Þetta er gott fyrir heilann og alla vefi líkamans, þar sem hann vinnur best þegar það er mikið súrefni í líkamanum.
21. Hveitigras er næringarlega séð fullkomin fæða sem getur viðhaldið vexti og þroska dýra og manna.
22. Hveitigras er meira hreinsandi heldur en gulrótarsafi eða annar grænmetis eða ávaxtasafar.
23. Það er mikil orka í hveitifræunum og að drekka hveitigras hentar sérstaklega vel fyrir íþróttamenn, þar sem það nýtist innan 20 mínútna og tekur litla orku frá líkamanum að nýta sér næringuna þar sem hún er í fljótandi formi.
24. Eitt skot af hveitigrasi slekkur á löngun í sætindi eða annan mat, þar sem það inniheldur svo mikla næringu.
25. Hveitigras inniheldur öll þau vitamin og steinefni, þar á meðal þau 13 mikilvægustu, ásamt fullt af öðrum efnum og ensímum sem við þurfum.
26. Hveitigras er áhrifamikið til betri heilsu, þar sem það inniheldur öll steinefni sem þekkt eru og vitamin A, B-complex, C,E,L og K. Það inniheldur einnig mikið protein og 17 aminosýrur.
27. Bændur hafa notað hveitgras til að auka frjósemi í kúnum sínum. (Hátt hlutfall af magnesium, eykur kynhormónin)
28. Hveitigras læknar bólur og jafnvel hjálpar til við að losna við ör. Það þarf að sjálfsögðu að laga mataræðið líka samfara því að nota hveitigrasið.
29. Hveitigras getur virkað eins og þvottaefni í líkamanum og eyðir vondri líkamslykt.
30. Að bæta hveitigrasi í fæðuna, hjálpar til við að koma í veg fyrir tannskemmdir.
31. Að velta hveitigrasi í munninum í 5 mínútur getur losað okkur við tannverk, það dregur sýkingu út úr gómnum.
32. Skolaðu hálsinn með hveitigrasi ef þú ert með sáran háls.
33. Drekktu hveitigras við húðvandamálum, eins og exemi og psoriasis.
34. Hveitgras dregur úr því að hárið gráni.
35. Tannrótarbólga í munni: leggðu svamp rennblautan í hveitigrasi á sýkta svæðið eða tyggðu hveitigras og skyrptu því svo út úr þér.
36. Hveitigras bætir meltinguna
37. Hveitigras er mjög góður húðhreinsir og hægt er að bera það á sig og húðin dregur í sig næringuna. Berðu á þig hveitigras fljótandi, og leggstu í heitt bað í 15 til 20 mínutur. Hreinsaðu þig með köldu vatni.
38. Hveitigras ristilskol, eru mjög góð til að heila og hreinsa ristilinn. Það hreinsar og heilar einnig innri líffæri. Eftir ristilskol, settu inn 4 únsur af hveitigrassafa. Haltu því inni í 20 mín.
39. Hveitigras getur dregið úr gigt. Leggðu bakstra af hveitigrasi á auma svæðið vefjið plasti yfir.
40. Búið til skol úr hveitigrasi fyrir minniháttar augnvandamál.
41. Nuddið hveitigras safa í höfuðleðriðr og hyljið í 15 mínutúr til að losna við flösu.
42. Hveitigras getur verið gott við margs konar kvenna vandamálum.
43. Hveitigras er gott við hægðartregðu það auðveldar ristlinum vinnuna þar sem það er svo hátt magnesíumhlutfall í því
44. Hveitigrassafi dregur úr háum blóðþrýstingi og eykur við háræðarnar.
45. Hveitigras getur hjálpa til við að losa okkur við þungmálma úr blóðinu.
46. Hveitigras bætir hvers konar blóðvandamál.
47. Annað gott við hveitigras er að þú getur ræktað það innan viku í eldhúsinu heima hjá þér.
48. Hveitigras er gluten-frítt, þar sem það er klippt áður en það myndar korn.
49. Dr. Earp Thomas fann ýmsa kosti við hveitigrasið, það er græðandi, stöðvar blæðingar, lagar kláða, og hjálpar til við að græða sár og bólur. Hann ráðlagði einnig að þvo ávexti og grænmeti upp úr hveitigras blönduðu vatni, það væri sótthreinsandi .
50. Að síðustu – með því að taka inn hveitigras, finnurðu aukinn styrk og þol, endurnýjaða heilsu likamalega og andlega, og almenna vellýðan.
Ef þið viljið sjá þessa grein óstytta farið á http://thechalkboardmag.com/50-reasons-to-drink-wheatgrass-everyday